Eldri fréttir frá árinu
Sýning: Sjálfbær þróun á heimsvísu
Sýningin Sjálfbær þróun á heimsvísu var sett upp í Ráðhúsinu 8. -22. mars. Forseti Íslands opnaði sýninguna. Um 1000 nemendur úr Reykjavík heimsóttu sýninguna með kennurum sínum.
Sýningin fjallar um Jarðarsáttmálann, mikilvægi sjáfbærrar þróunar og möguleika einstaklingsins til að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt. Í Jarðarsáttmálanum segir m.a.
“Við stöndum á tímamótum í sögu jarðar. Upp er runnin sú stund að mannkynið þarf að velja sér framtíð. Á sama tíma og veröldin tengist æ meir saman og verður brothættari, felur framtíðin í sér mikla áhættu en jafnframt stórkostlega möguleika. Á leið okkar til framtíðar þurfum við að horfast í augu við að þrátt fyrir stórkostlega menningarlega og líffræðilega fjölbreytni er mannkynið samt ein fjölskylda og jörðin eitt samfélag með sameiginleg örlög.
Við þurfum að taka höndum saman um að mynda sjálfbært samfélag á heimsvísu sem byggir á virðingu fyrir náttúrunni, mannréttindum, réttlátri skiptingu lífsgæða og friðarmenningu. Í þessu samhengi er brýnt að við, íbúar þessarar plánetu, göngumst við ábyrgð okkar gagnvart hvert öðru, gangvart lífríkinu og komandi kynslóðum.”
Hægt er að fá nánari upplýsingar um sýninguna á slóðinni www.simnet.is/meistarar
Námskeið: Danskir meðlimir heimsóttu Ísland
9-11 janúar var haldið námskeið í Reykjavík á vegum SGI á Íslandi. Námskeiðið sóttu um 100 manns á öllum aldri. Á námskeiðið komu gestir frá Danmörku, þar á meðal leiðtogi dönsku SGI samtakanna Jan Muller og kvennaleiðtogi á Jótlandi Kristín Steingrímsdóttir. Þau héldu fyrirlestra og sátu fyrir svörum um mannúðarheimspeki búddismans og hvernig megi nota hana til að umbreyta þjóðfélagsástandinu á jákvæðan hátt.
Verkefni: Umhverfisvaktin hefst á ný
Umhverfisvaktin er hafin á ný eftir sumarfrí. Eitt af markmiðum SGI er að stuðla að bættu samfélagi og vernda náttúruna og umhverfi okkar svo þetta verkefni hentar vel samtökunum.
Það er vasklegur hópur félaga sem hefur tekið þátt í þessu átaki af mikilli ánægju.Það hefur verið markmið hópsins að hafa gaman af verkefninu og njóta þess að vera úti með félögum okkar, um leið og við leggjum af mörkum til samfélagsins. Eftir hverja ferð bíður okkar síðan veisluborð sem þeir sem ekki geta tekið þátt í sjálfri hreinsuninni hafa undirbúið.
Hátíð: Gleðiganga Hinsegin daga
SGI á Íslandi tók þátt í gleðigöngu Hinsegin daga 9. ágúst.Þema hópsins var Galdrakarlinn í Oz og voru Dórothea, Fuglahræðan, Tin maðurinn og Ljónið samankomin ásamt galdrakonunni góðu
á palli samtakanna og var þeim fylgt eftir af meðlimum SGI á Íslandi.Einnig voru 5 erlendir meðlimir sem komu sérstaklega til landsins til að taka þátt í göngunni með samtökunum.
Verkefni: Umhverfisvaktin í Hafnarfirði
SGI á Íslandi var boðið að taka þátt í Umhverfisvaktinni í Hafnarfirði.
Umhverfisvaktin er samfélagsverkefni sem Hafnarfjarðarbær fór af stað með á vordögum,en tilgangur verkefnisins er að hvetja félagasamtök til þess að taka virkan þátt í samfélaginu með því að leggja sitt af mörkum til umhverfisverndar.SGI hefur tekið að sér að tína rusl í Setberginu og hafa félagar í SGI verið að vaða læki og ganga um hraunið og tína upp rusl undanfarnar vikur. Allir félagar í SGI hvattir til þess að koma og leggja hönd á plóg.
Sýning: Sjálfbær þróun á heimsvísu
Laugardaginn 26. apríl stóð Umhverfisráðuneytið fyrir sýningu í Perlunni um vistvænan lífstíl. SGI kynnti þar fræðslusýninguna Sjálfbær þróun á heimsvísu, sem fjallar um Sáttmála jarðar. Sýningin er samstarfsverkefni milli UNDP, UNEP, Earth Council, Earth Charter Initiative og Soka Gakkai International. 
Sýningin var hönnuð sem fræðslusýning fyrir skóla og bæjarfélög í tilefni þessum áratug sem Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað menntun um sjálfbæra þróun. Sýningin var sett upp í Hafnarfirði árið 2007 í samstarfi við Staðardagskrá 21, skólaskrifsofu Hafnarfjarðar og Umhverfisnefnd Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á slóðinni http://www.simnet.is/meistarar




