top of page

Um SGI

Soka Gakkai International (SGI) eru samtök búddista með rúmlega 12 milljónir meðlima í 190 löndum og svæðum um allan heim.

 

Fyrir meðlimi SGI er búddismi virk heimspeki sem stuðlar að jákvæðum hugarfarsbreytingum einstaklingsins, hvatningu til sjálfsþroska og ábyrgðar á eigin lífi.

 

Sem leikmenn og „virkir búddistar“ leggja meðlimir SGI sig daglega fram um að þroska með sér trú á lífið, skapa verðmæti við allar kringumstæður og leggja sitt af mörkum fyrir velferð fjölskyldu, vina og samfélagsins.

 

Megin áherslan í starfsemi SGI felst í að efla frið, menningu og menntun.

Stutt kynning á grasrótarhreyfingu SGI sem stuðlar að sjálfbærri þróun og afnámi kjarnavopna.
 

bottom of page